Gagnasöfn
Orkustofnun heldur utan um nokkur gagnasöfn.
Þessi síða er varða á vegferð Orkustofnunar að efla aðgengi almennings að gögnum, auka samræmingu og rekjanleika gagna.
Hver útgáfa á töflu er auðkennanleg og skal vísa í auðkenningu töflunnar í myndatexta eða á myndinni sjálfri ef gögnin eru notuð. Sömuleiðis eru veittar upplýsingar um hvernig skuli vísað í tölvugögnin í heimildaskrá. Hægt er að átta sig á því hvort ný útgáfa af sömu töflu hafi verið gefin út með því að rýna í síðustu tvo tölustafi auðkennisins.
Hægt er að nálgast útgefið talnaefni varðandi orku, raforku, varma, eldsneyti, og annað með því að ýta á hnappana hér að ofan.